mánudagur, nóvember 03, 2003

Erfitt

Mér finnst þessa dagana lífið vera erfitt. Ég er þreytt, mér finnst ég ekki vera skila neitt eftir neins staðar. Tökum t.d. vinnuna, Þar er ég að prufa ýmsar kennsluaðferðir sem verið er að kenna í Kennaraháskólanum ég get ekki sagt að mér finnist það virka neitt að ráði. Mér finnst yfir höfuð nemendur vilja bara verkefnabækur og eyðufyllingar, því ætti ég að vera að koma með eitthvað sem er svo ekki að virka? Skólinn er alveg að drepa mann, það er svo mikið að gera í t.d. dönskunni ég er alveg týnd hér í upplýsingamenntinni. Ég get ekki séð hvað aðrir eru að gera, ég finn ekki vefina aftur. Þetta er mjög erfitt. og svo er ég bara tynd í öllu og einu og ég veit ekki hvað.
Svo á ég fjölskyldu! ótrúleg þolinmæði sem þar er verð ég nú að segja. Jæja það þýðir nú víst ekki að reyna að kvarta svona er stundum þá finnst mér þetta alveg nóg.
blogga aftur þegar betur liggur á mér. ég er bara í fýlu!

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

Á heimasíðu