föstudagur, desember 08, 2006

Jólin

Ég var að skoða bloggið hjá frænku minni, hún hefur þann sið að vera með jóladagatal, og hún föndrar einhverjar vísbendingar á hverjum degi fyrir dætur sínar. Ég var og er rosalega heilluð af þessari hugmynd, aldrei dettur mér neitt svona í hug.
Það misjafnt hvað fólk leggur á sig fyrir jólin, að gera jólin að hátíð barnanna. Ein af betri vinkonum mínum (sem er reyndar nokkuð eldri en ég, gæti verið mamma mín) en hún föndraði ótrúlegustu hluti fyrir dætur sínar, það var föndrað og saumað og bakað og dundað sér við ótrúlegustu jólahluti á þeim bænum. Já hún byrjaði að undirbúa jólin um miðjan nóvember, enda eru dætur hennar svakaleg jólabörn. Ég hlusta alltaf á þessa sögu með öfund, og vildi óska að ég gæti gert eitthvað svona.
Þá er það nátturulega ekki annað að gera en að drífa sig og gera eitthvað með strákunum. En ég veit að ég er ekki þessi föndurtýpa og skil eiginlega ekki hvers vegna ég er að pirra mig á þvi að gera ekki eins og aðrir.
Jæja, nóg um þetta rölf,
Haldið áfram að gera sniðuga hluti fyrir jólin og segið frá þeim. Ég fæ þá allavega hugmyndir og kannski einn daginn, mun ég framkvæma :-)

3 Athugasemdir:

At 08 desember, 2006 14:53, Anonymous Nafnlaus said...

Galdurinn er einmitt fólginn í því að gera eitthvað sem manni finnst sjálfum vera skemmtilegt.

 
At 08 desember, 2006 17:47, Anonymous Nafnlaus said...

Allt spurning um hvar áhugasviðið liggur og tíminn sem maður hefur

 
At 08 desember, 2006 18:04, Anonymous Nafnlaus said...

ég veit það, en það er ekki málið. Manni finnst alltaf aðrir gera svo miklu meira og flottara og betra en maður sjálfur. Samt veit maður alveg að þetta er bölvuð vitleysa, en ... hehe!

 

Skrifa ummæli

Á heimasíðu