Veikindi
ÉG dag ákvað ég að vera heima, líður einkennilega i bumbunni, ef ég væri einnig með bakverki hefði ég haldið að ég væri að fara af stað. Svo ég ákvað að vera heima og hvíla mig.Samviskubitið nagar. Alltaf kemur upp þessi hugsun, "æj, ég gæti alveg komið mér, farið svo bara snemma heim." En í dag ætla ég mér að reyna að bæja frá þessum hugsunum. Ég er að hugsa um að leggjast upp í rúm með bækurnar tvær sem ég er að reyna að lesa (sofna yfirleitt mjög fljótt eftir að ég leggst á koddann). Svo hafði ég í vikunni keypt mér tímarit, sem ég geri aldrei, svo kannski ég reyni að kíkja í það, og forvitnist inn í hugarheim Guðmundar í Byrginu! Það er örugglega skuggalegt...
Svo er ég að hugsa um að fara jafnvel í Sims! já, dett ofan i einhvern tölvuleik þar sem ég þarf ekki að hugsa mikið. Svo þegar ég er búin að hvíla mig rosalega mikið þá ætla ég að fara yfir verkefni!!! þetta hljómar vel, þá hef ég hvílt mig og jafnvel lagað samviskuna líka!
Svei mér, kannski ég skelli mér bara í vinnuna....


5 Athugasemdir:
Svona líður okkur flestum þegar við eigum við smá veikindi að stríða. En það er bara ágætt að vera svona veikur þegar maður getur lesið ogfarið í tölvuna og sonna hm...
ég held að það versta sem foreldrar koma inn í mann er samviskubit. Það hrjáir mann alla ævi!
Kennari sem ættlar að hætta snemma í vinnunni, tekur því að setja bílinn í gang fyrir svoleiðislagað:)
passaðu þig!!!
He he.... láttu þér batna frænka.
Skrifa ummæli
Á heimasíðu