Lærdómur
Á eftirminnilegu ættarmóti sá einn af mínum frændum aumur á sér og kenndi mér sitt lítið af hverju á myndavélina mína. Það var ágætt að læra svona aðeins meira á þennan "dýr"indisgrip, í stað að vera alltaf með stillt á sömu stillinguna þannig ég þurfi akkúrat ekkert að hafa fyrir myndtökunni. En svo var ég leidd í allan sannleikann um iso 80, 200 og 400. Einnig er eitthvað annað fyrirbæri þarna sem ýmist dregur úr eða eykur birtu. Þetta er ég búin að vera að prufa með á fullu, en ég næ ekki alveg hvað er hvað, svo ég bara geri í aðra hvora áttina þar til myndin er svona nokkurn veginn í lagi. Nú er ég allavegana farin að skilja þetta tæki sem atvinnuljósmyndarar eru með til að mæla ljósið eða birtuna öllu heldur.
Hversu vel þessar myndir heppnast það er nú allt annað mál.
Svo ef einhver er forvitin um afraksturs þessa æfingatöku er hægt að nálgast myndirnar á myndasíðunni.


1 Athugasemdir:
já já þetta er allt annað hm.. : )
En þetta er gríðar skemmtilegt þegar maður getur haft meiri og sterkari áhrif á útkomuna en bara að ramma myndefnið inn, heldur líka ákveðið ljós og skugga myndarinnar...
Skrifa ummæli
Á heimasíðu