Halló
Nú hef ég verið að vafra um netið í nokkra daga. Farið inn á ýmiskonar síður sem „linka“ út frá hinum og þessum síðum sem gefnar eru upp hér á þessu
námskeiði og mér finnst ég vera gjörsamlega týnd. Ég bara kemst ekki í gírinn. Svo reyni ég að kíkja á aðrar síður og ég meina vá. Ég hef alltaf talið mig vera mikla tölvumanneskju, en ég er greinilega ekki mikil netmanneskja. Ég næ ekki að skrifa svona í dagbók :( eða blogga. Leita að ýmsu á netinu o.fl. Þó hef ég alltaf talið að ég notaði netið mikið. Einkennilegt, jæja, þá er best að halda áfram.
0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
Á heimasíðu