Frábær saga!
Strákurinn minn (eldri) er 4 ára og mjög hugmyndaríkur. Um daginn sátum við fjölskyldan og horfðum á gamalt myndband frá því að hann fæddist. Þetta horfði hann á með mikilli athygli (ekki var tekin mynd af fæðingunni sjálfri!) Allavega, Arnar Þór fór að útskýra fyrir okkur að þarna hefði hann bara verið lítið fræ í maganum og stækkað! Þetta vakti athygli okkar þar sem hvorugt okkar hjónanna hefði verið að útskýra fyrir honum hvernig börnin yrðu til (kannski einum of ungur)Þá kom sagan:
Sko menn setja litlu fræin í kassa (sko menn í Frakklandi) og svo eru kassarnir fluttir með skipi til íslands og þar er þeim komið fyrir í maganum hjá mömmunum í gegnum naflann. Þar fær fræjið að stækka í friði og verða barn!!!
Ég átti ekki til orð yfir þessu og erfitt var að fela hláturinn sem braust um í manni.
Jæja, læt þetta nægja í bili.


0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
Á heimasíðu