fimmtudagur, september 16, 2004

Verkfall?

Já, ég er að kenna og er að fara í verkfall.
Það er einkennilegt, því ég hef aldrei farið í verkfall áður! En það sem mér finnst einkennilegast er að skyndilega þarf ég að verja rétt mitt til að fara í verkfall fyrir öllum! Það liggur við að ég þurfi að gana með launaseðilinn, og nákvæma skýrslu hvað ég geri á daginn. Ég veit ekki til þess að ég skipti mér neitt af því hvernig sjómenn hagi sinni vinnu, eða bankastarfsmenn. Það hvarlar ekki að mér að tjá mig um starf annara sem ég hef enga hugmynd um hvernig svo sem virka, eða hvað er að gerast á bakvið tjöldin sem ég veit ekki um. En allir hafa skoðanir á kennurunum og þeirra starfi, og allir vita nákvæmlega hvað kennarar eru að gera. Samt vill enginn vera kennari, það finnst mér skrýtið, ef kennarar hafa það svona svakalega gott, því vill enginn taka þetta að sér?
Já, það er margt skrýtið. Jæja, ég ætla þá að fara að koma mér heim, og vakna hress í fyrramálið. Þá verð ég örugglega mun bjartsýnni en ég er í dag.

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

Á heimasíðu