fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Kjarabarátta

Nú hefur verkfallið staðið frá því 20. september. Fengum reyndar eina viku í frí! Það kemur mér verulega á óvart viðhorf samfélagsins til kennara. Sumt skil ég vel, og allt í lagi að hafa skoðanir, en fyrirlitningin, ekki bara hjá óánægðu foreldrum heldur t.d. ráðamönnum þessa lands. Menn sem koma fram opinberlega og finnst allt í lagi að rakka niður kennara. Ég er ofboðslega hissa á launanefnd sveitarfélaganna, hvernig þeir geta talað niður til kennara.
Ég er ofboðslega hissa að engum finnst það athuganavert að, 90% kennara ákváðu að fara í verkfall. Að heil stétt var tilbúin að fara þessa leið, sem er reyndar mjög sérstakt því kennarar eru mestu gungur (með fullri virðingu fyrir kennurum). Annað sem kemur á óvart, að engum finnst það athuganavert, að kennarar samþykktu ekki hvað sem er, sem er líka óvanalegt hjá kennurum. Það er einnig ótrúlegt, að engum dettur í hug að það sé eitthvað verulegt að, í kjaramálum kennara að þegar þeir eftir 6 vikna verkfall, búnir að sitja undir ótrúlegustu ásökunum. Þurfa að verja sínar kröfur á öllum vígstöðvum, þá eru þeir samt tilbúnir til að halda áfram, vitandi að þeir hafa ekki samúð þjóðarinnar.
Já, kennarar eru að koma rosalega á óvart, og ég er stolt af þeim, stolt hvað þeir standa saman og eru ákveðnir í að gefast ekki upp.
Hér koma nokkrar vangaveltur hjá mér á stöðunni.
Ég var um daginn í góðum hópi vina, að sjálfsögðu kom upp kjaradeila kennara og allir höfðu skoðun á þvi máli. Ég var sett í yfirheyrslur, og fólk vildi nú vita hvað það er eiginlega sem kennarar eru að fara fram á og vildu vita nákvæmlega hvað ég gerði yfir daginn. Spurð spjörunum úr. Það sem vakti athygli mína er að einn í þessum hópi er í ágætlega launaðri stöðu, einhverskonar yfirmaður, hann er með um 450-500þ á mánuði. Enginn eiginlega veit hvað hann gerir á daginn, og þegar ég fyrir einhverju síðan var að spurja hann þá gat hann eiginlega ekki svarað mér. Það sem ég fékk upp úr honum var að ef eitthvað bilaði, þá sendi hann menn til að laga það! Það finnst engum þetta athuganavert, ég þarf að gera nákvæma grein fyrir mínum 160.000, en sá sem er með þreföld mín laun, ja, :„hann er með svo mikla ábyrgð!“ Allt í lagi, ég skal alveg samþykkja það, en, ja, ég er eiginlega get ekki svarað þessu því þetta finnst mér einkennilegt.
Umræða í Kastljósi um daginn var að LÍN er að lækka greiðslubyrgði, um 30.000 kr á ári, held ég fyrir einstakling með 3 ára háskólamenntun og byrjunarlaun 250.000. En vittu til, EKKI KENNARI. Það væri alveg fáranlegt að kennarar settu sig í sömu sport og aðrir háksólamenntaðir einstaklingar. Þetta eru jú bara kennarar.

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

Á heimasíðu