Enn ein auglýsingin

Eruð þið orðin þreytt á þessu. Ég er allavega nokkuð sátt við þetta því ég blogga þá allavega eitthvað á meðan.
Í dag var öskudagur og fór eflaust ekki framhjá neinum. Börn í allsknar búningum þeyttust um bæinn og sungu í von um að fá eitthvað sælgæti. Vonda mamman ég, var nú ekki tilbúin að hleypa mínum guttum niður i bæ að sníkja sælgæti, svo þeir þurftu að húka á leikskólanum og frístundarskólanum. Mér fannst nu frekar slappt af frístundarskólanum að vera ekki með neina dagskrá handa krökkunum sem áttu svo erfiða forledra að þeir gátu ekki leyft þeim að ráfa um eftirlitslaus. Ekki var fari í neina leiki eða kötturin sleginn úr tunnunni eða neitt. Allir sátu inni og horfðu á video! Jæja, ég var nú svo komin með svo mikið samviskubit að ég fór svo að eindanum að ná í strákana og leyfði þeim að kaupa sér bland í poka. ég hefi nátturulega sparað peningin ef ég hefði bara hleypt þeim niður i bæ að sníkja nammi!


1 Athugasemdir:
Plís ekki hætta að setja inn þessar myndir þær eru skemmtilegar.
Ég átti líka í vandræðum með öskudaginn hér áður fyrr. Þó var nú alltaf skóli hjá stelpunum og eitthvað skemmtilegt reynt að gera þar. En bara fram að hádegi og eftir hádegi vildu þær fara út og betla og ég var ekkert allt of sátt við það. En þær komust upp með það og finnst það mjög gaman. Hrund er hætt því núna en Eyrún fór með vinkonu sinni og söng hér og þar og fékk slatta af nammi fyrir.
Skrifa ummæli
Á heimasíðu