Andvaka
Nú er ég andvaka, hef ekki upplifað það síðan ég man ekki hvenær, en það skemmtilega við þessa andvöku er að Þröstur var andvaka líka. En nú er Þröstur ekki lengi andvaka sofandi eins og steinn ásamt hinum fjölskyldumeðlimunum. Svo nú verð ég reyna að sofna.Það er greinilegt að það er ekki mikið bloggað hjámér þessa dagana, hef nú ekki mikið að skrifa um. Ég ætla reyndar að fara út ímjög viðkvæmt málefni, þar sem flestir ef ekki allir hafa skoðun. Ég frétti í dag að um daginn mátti lesa í einhverjum fjölmiðlinum (man ekki hvaða) að greinilega væri farið að hausta þar sem kennarar væru farnir að væla útaf launum enn eina ferðina. Þetta er ótrúlegt. Mér finnst alltaf vera svo mikil, hvað segir maður tvíræðni?, ja segjum það bara tvíræðni í þessu. Fólki finnst kennara endalaust röfla undan laununum, en því dettur ekki íhuga að það sé ástæða fyrir þvi, nei, við erum bara að röfla og kvarta og kveina. Flestum finnst kennarar hafa svo góð laun, svo ég velti þvi fyrir mér, ef launin eru svona góð og allt svo frábært af hverju eru kennarar þá að "röfla." svo er alltaf þetta klassíska við erum með svo gott sumarfrí, og páskafrí og jólafrí, ja, jú, jú það er ekki hægt að neita þvi en það eru líka einu forréttindin sem kennarar hafa, en maður lifir ekki eingöngu á góðum fríum maður vill líka fá borgað fyrir vinnuna, og ekki nenni ég að fara útí að útskýra fríin, það hefur verið gert svo oft. ég velti því fyrir mér ef launin eru í lagi og allt það og kennarar eru bara að röfla, af hverju er ekki meiri aðsókn í þetta starf en raun ber vitni? hvers vegna er þá skortur á kennurum? Ja yfirleitt er sagt að maður á þá bara að fara eitthvað annað, og það er akkúrat það sem gerist, en þá sitja líka börnin okkar með nýútskrifaða stúdenta. Ég skil aldrei hvers vegna þjóðin er ekki tilbúin til að gera kennarastarf að aðlaðandi starfi en ekki íhlaupavinnu. en þetta er greinilega það sem þjóðin vill svo það endar örugglega með mig eins og aðra, ég finn mér eitthvað annað. Nóg um þetta, maður verður alltaf svo pirraður og reiður, og ekki þarf ég á því að halda í andvöku minni.
Góða nótt.


1 Athugasemdir:
Farðu nú að sofa :)
En þetta er allt saman lauk rétt hjá þér.
Skrifa ummæli
Á heimasíðu