miðvikudagur, desember 22, 2004

Jólin, bara lovly!

Jólin, jólin, jólin koma brátt. Jólaskapið kemur smátt og smátt...
Orð að sönnu.
Svei mér, þetta verða einkennileg jól. Ég er enn ekki komin í jólaskap, og mér finnst það einkennilegt, því ég er algjört jólabarn.
En þetta kemur allt.
Eftir langa og stranga baráttu hjá kennurum, vorum við knésett, með 16.5% launahækkun. 'O my god. Það varð allt brjálað, við setjum allt á annan endann. ASÍ hótandi öllu og ég veit ekki hvað. Nema hvað, hvað gerist, bankamenn semja um 18% og enginn segir neitt. Allir svaka kátir, leikskólakennarar já, þeir fengu eitthvað svipað og bara allt í goody. Oh, þetta pirrar mig alveg svakalega. Jæja, ég ætla ekki að vera að rífa kjaft núna
Gleðileg jól hó, hó, hó. Candy Cane 1






0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

Á heimasíðu