Tiltekt
Nú fyrir viku síðan, fékk þá snildarhugmynd að taka til í einu herberginu hérna hjá okkur. Nánar tiltekið herberginu hans Arnars míns, sem bæði hýsti hann, dotið hans og mitt og Þrastar og Sigurðar ... Sem sagt herbergi fjölskyldunnar.Samviskusamlega hef ég í heilt ár, sem sagt allt árið 2005 safnað saman kvittunum og ýmsum gluggapósti sem berst með nútímafólki og allt lenti þetta í "herberginu!". Ég skil ekki hvað ég var að spá, átti að vera smá dund eða dútl á sunnudegi þar sem ég nennti ómögulega að hjálpa Þresti að mála eða taka úr uppþvottavélinni. Nú viku siðar, er reyndar allar kvittanir og allt komið í möppu hver merkt sínum mánuði, svaka flott. Fyrir vikið hefur stofan mín breyst í leikherbergi Arnars og Sigurðar, þvottahús, skjalageymslu... Enn hefur ekki verið sett í uppþvottavélina og (lýg því reyndar en samt!) og Þröstur löngu búinn að mála ganginn og svefnherbergið, og fullt af öðrum herbergjum og stofum út í bæ!
Og hvað hef ég lært af þessu! Byrja smátt og enda stórt! Næst set ég uppþvottavélina áður en ég byrja að taka eitt herbergi í gegn. Því n.b. þetta var bara ein hliðin á herberginu, nú á ég hina hliðina eftir :-(


3 Athugasemdir:
úff púff, tiltekt getur farið með mann.
Var að skoða myndir í gær þar sem við tókum til í geymslunni í fyrra, það er ekki hægt að sjá það í dag. En rassíur af því taginu eru í lagi mín vegna, það eru þessi litlu daglegu þrif sem ég á töluvert erfiðara með. Hvað er leiðnilegra en að þurrka af, setja í þvotta- og uppþvottavél t.d.? Þetta eru allt verk sem taka engan enda og þarf alltaf og endalaust að vera að gera.
Sammála, ráðast á geymslu eða eitt svona herbergi getur verið "gaman" og það er allt í lagi að setja í þvottavél (leir og tau) en að taka úr þessum vélum og ganga frá, það gerir manni bara illt. En gangi þér vel með hina hliðana á herberginu : )
Hurður hvenær ætlar þú að hætta taka til og skrifa eitthvað meira á bloggið þitt hm???
Skrifa ummæli
Á heimasíðu