Byrgið
Um daginn var sátum við í kaffi og ræddum um ýmis mál, eitt af þeim var Byrgið og hvernig það mál var allt saman. Að sjalfsögðu höfðu flestir einhverja skoðun á þessu máli, en í framhaldi af þessu datt einhverjum í hug að fletta þessu upp í orðabók. Útkoman var frekar skondin og nú skiljum við þetta mál miklu betur.Byrgi þýðir gerði, stía fyrir sauðfé, skúr, hjallur, vígi
Byrgja þýðir: lokun, það að byrja aftur
Byrgiskona þýðir frilla, byrgismaður er friðill,
Byrgisskapur saulifnaður, samfarir utan hjónabands
Að byrgja þýðir loka, sópa snjó að, hýsa fé og hesta, fela, hylja.
Maður veltu því fyrir sér hvort viðkomandi aðilar hafi ekki bara verið sjálfum sér samkvæm, og það er fáfræði okkar að hafa ekki áttað okkur á merkingu orðanna? -eða hvað?


7 Athugasemdir:
skemmtileg.
Ótrúlegt.
Þetta sýnir og sannar hversu nauðsynlegar orðabækurnar eru.
Ég heyrið í einhverjum svona talna og -nafnaspekingi í Ísland í bítið, hann trúði því að tilviljanir væru ekki til og við værum skírð nöfnum sem gerði það að verkum að við værum þannig og hinsegin og ekki út frá neinni tilviljun, það á kannski vel við í Byrgisdæminu öllu hm???
Hvað meinarðu? Að Guðmundur mundar Guði?
Það sem ég á við er að Byrgið hefur ekki verið skírt Byrgið fyrir neina tilvilnu og það sem svo á eftir kom, allavega myndi þessi talna/nafnaspekingur halda því fram...æj ég skil ekkert hvað ég er að þruggla þetta : )
Byrgið var náttúrulega ekki skírt Byrgið, eða hvað?? Því hefur væntanlega verið gefið nafnið Byrgið, afsakið staðhæfingavillur hér.
Skiptir það máli, staðreyndin er sú að staðurinn og fólkið stendur undir nafni er það ekki.
Skrifa ummæli
Á heimasíðu