fimmtudagur, september 25, 2003

Glærukynning

Ég hef það, ég hef það!!..... Nei, ég hef það ekki!.
Jú, nú hef ég það, glærukynning: einelti. Af hverju fattaði ég það ekki fyrr, nú er ég búin að vera að hrærast í þessu og finna ýmislegt um einelti, setið á fyrirlestrum og ég veit ekki hvað, svo auðvitað verður að vera um einelti. Damn, stundum.
Jæja, ég er að fara af stað með svona „eineltisprógramm“ í bekknum mínum, sýndi þeim myndin: Einelti, helvíti á jörð - eftir það ræddum við um einelti (eins mikið og þau geta, þau eru frekar afturhaldssöm) en þetta ágætlega. Þau urðu ofboðslega hissa þegar ég sagði þeim að þau væru með mikla tendensa til að viðhalda, ja ekki beint viðhalda heldur með svona atferlismynstur til eineltis. Það er margt sem þau gera og það er ekki auðvelt að koma nýr inn í bekkinn. Svo ég er að reyna að opna þau meira, fá þau til að tjá sig og virða tilifinningar annara. Vonandi gengur mér bara vel.

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

Á heimasíðu