Tiltekt
Svei mér, ég hef áður bloggað um þetta atriði, því þegar ég byrjaði að skrifa "tiltekt" kom það upp hjá mér. Greinilega mikið áhugamál hjá mér.Ég las bók um daginn, sem er kannski ekki frásögu færandi, jú það er það víst, því bókin heitir, draslið burt eða eitthvað álíka. Allavega fullt af ráðleggingum um hvernig á að halda hreinu. Uppljómum, algjör. Heldurðu að ég hafi ekki komist að því að það byggist á að ganga frá eftir sig, og að hver hlutur hefur sinn stað! svei mér, að ég hafi ekki fattað það fyrr.
Jú, reyndar vissi ég það, málið er með mig, að ég er alltaf að ganga frá eftir mig, ég geri það bara of seint! og hver hlutur hefur sinn stað, ég er bara ekki búinn að finna staðinn! Svo nú er ég í átaki, ef það tekur minna en mínútu gerðu það strax. Mörgum kann að finnast ég undarleg núna, en veistu hvað, það er bara helling til í þessu. Að setja umslagið í ruslið í stað á borðið gerir bara ýmislegt. Að setja glasið í uppþvottavelina í stað við hliðina á vaskinum minnkar drasl í eldhúsinu. En svo kemur náttúrulega að þvi að það er hreint í uppþvottavélinni og að setja glasið í vélina tekur því lengur en mínútu þá er það ekki gert strax, þarf að vinna mig svolítið upp í þessu. Batnandi fólki er best að lifa og ég er að verða ansi góð í þessu, engin maraþongangafrámanneskjameðtuskuæðidauðans en ... Þetta kemur vonandi. :-)


2 Athugasemdir:
Það er bara ekki öllum gefið að hafa áhuga á að hafa endalaust hreint í kringumsig.
úff já tiltekt og þrif. Ekki það vinsælasta hjá mér.
Skrifa ummæli
Á heimasíðu