Föstudagur
Jæja, þá er vikan liðin og helgin framunda, hvað er í gangi? - Lærdómur, undirbúningur, lærdómur, skipuleggja og lærdómur. Já heyrðu það vantar eitthvað, hvað ætti það að vera, oh, jú já nú man ég, ég á fjölskyldu!!! Hvar á ég að koma henni fyrir? Æj, kannski er smá tími fyrir hana eftir klukkan tíu á kvöldin. Nei, þá eru strákarnir farnir að sofa!! Eilíft vesen. Jæja, ég er allavega búin að redda þessum vanda til klukkan tvö á morgun. Sendi þá upp í sveit með afa og ömmu, þá ætti ég að fá smá tíma til að sinna námi og vinnu! Kannast einhver við þetta?Ég á að skila verkefni um einelti í dag, og ég er svo langt frá því að vera búin. Þetta verður greinilega langt og strembið kvöld í kvöld. Jæja best að fara að drífa sig. Góða helgi.


0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
Á heimasíðu