Tæknisaga
Það er einkennilegt að ég hef alltaf talið mig nokkuð tæknivædda manneskju. Kannski enginn maniac, en svona hef getað umgengst tölvur og flest tæki án nokkurra fyrirhafnar. Svo fór ég í áfanga sem heitir upplýsingatækni og skólastarf! Þá komst ég að því að ég veit ekki neitt, kann ekki neitt og allt er í bölvuðu veseni hjá mér. Ég næ engan veginn að fylgjast með eða neitt. Þetta pirrar mig alveg ferlega.Nú á ég að koma með tæknisögu og mig langar helst að skríða upp í rúm og vakna þegar tæknin er orðin eins og hún var, þegar ég skildi hana og kunni!! Miðað við framförina í dag er það nú frekar hæpið að það gerist svo ég held ég sleppi því núna en held áfram með tæknisöguna seinna þegar ég er buin að átta mig almennilega á hvað ég á að gera.
Mér finnst eins og það sé svo mikið af verkefnum sem ég á að vera buin með en ég er samt ekki að fatta hluina, svei mér hvað eg get verið treg. jæja, nóg um þetta væl og röfl.


0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
Á heimasíðu